
Íslenska bútasaumsfélagið bað mig aftur um að vera með snið í næsta Fréttabréfi þess. Þá datt mér í hug skemmtileg aðferð við að nýta þokkapakkana (e. Charm pack). Þokkapakkar eru 5" ferningar.
Hér er dúkur sem ég saumaði með þessari aðferð. Efnin eru frá Sandi Henderson og heitir þessi "djúsí" lína "Farmer's Market". Þetta eru æðisleg efni sem komu frá Sandi fyrir nokkrum árum en ég er alltaf að rekast á verkefni úr línunni, t.d. keypti ég bók um daginn með sniðum að barnafötum og þar var æðislega sæt stelpukápa saumuð úr rauða eplaefninu.

Ég skal setja aðferðina hér inn þegar Fréttablaðið er komið út. Ef þið viljið ganga í félagið og fá Fréttablaðið inn um lúguna 2x á ári, smellið þá hér :)

Eigið góða viku framundan,
Berglind
